Mín verkefni:
Norræn stjórnmál er bloggsíða sem ég held úti og uppfæri þegar mig langar að tjá mig um eitthvað sem tengist norrænum stjórnmálum.
Vettvangur er vefsíða um stjórnmál, menningu og allt hitt. Ég er skrifaður fyrir þessari síðu og hef notað hana óreglubundið til að koma mínum viðhorfum um hitt og þetta á framfæri. Fáeinir aðrir hafa einnig birt þar efni. (uppfært í sept. 2011: Síðan liggur niðri í augnablikinu vegna tæknilegra vandamála)
Bókmenntir.is, Bókmenntavefur Borgarbókasafnsins, var minn starfsvettvangur til rúmlega tveggja ára. Þar gafst mér gott tækifæri til þess að sinna einu minna helstu áhugamála og komast í tæri við fjölda íslenskra rithöfunda og verk þeirra. Samstarfsfólk mitt á vefnum og vinnan sjálf var ákaflega gefandi og skemmtileg.
Vefsíða Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs var opnuð vorið 2011 í tilefni 50 ára afmælis verðlaunanna. Ég var í vinnuhópnum sem vann að gerð síðunnar.
Bókabloggið er eins konar bókadagbók þar sem ég hef frá haustinu 2004 hripað niður vangaveltur mínar um þær bækur sem ég er með á náttborðinu hverju sinni.
Fyndir eru tilraunir mínar til þess að vera fyndinn í formi teikninga. Mestallt frá 2004-5 en dálítið af nýlegu líka.
Islandsk litteratur er vefsíða PILK-hópsins sem ég er hluti af. PILK (Projektgruppen Islandsk litteratur i København) hefur að markmiði að kynna íslenskar samtímabókmenntir fyrir Dönum og stendur fyrir árlegum bókmenntakvöldum í nóvember þar sem íslenskir rithöfundar koma fram. Við erum líka á Facebook, flettið okkur upp þar!
Æfing í uppsetningu og myndvinnslu. Lokaverkefni mitt á námskeiði í notkun myndvinnslu- og uppsetningarforrita í Kaupmannahöfn vorið 2009 var þetta rit sem ég kallaði Vettvang. Þar safnaði ég saman ýmsum greinum eftir sjálfan mig, setti upp og myndskreytti eftir bestu getu. Ritið ber þess auðvitað merki að vera ófullgert að ýmsu leyti og á því er heilmikill byrjendabragur. En þetta var skemmtilegt grúsk, engu að síður.
Myndbönd um norrænt samstarf: Hluti starfa minna fyrir skrifstofu Opinbera norræna samstarfsins í Kaupmannahöfn hefur verið vinna á stuttum myndböndum sem hafa birst vettvangi þess og á Youtube-síðum Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs og Norræna menningarsjóðsins. Þau sem ég stend á bak við eru ekki sérstaklega merkt mér en þau eru þarna inn á milli.
CULTIVATE: Ég starfa hjá Kaupmannahafnarháskóla við alþjóðlega rannsóknarverkefnið CULTIVATE. Hluti þess starfs er að halda við vefsíðu verkefnisins.
Helle Porsdam: Ég bjó til þessa vefsíðu fyrir yfirmann minn í Kaupmannahafnarháskóla, Helle Porsdam prófessor í bandarískum fræðum. Vefsíðan er ekki flókin að gerð en dugir til að koma einföldustu skilaboðum á framfæri.