Sitt hvoru megin við Eyrarsundið er nú verið að setja upp leiksýningar sem við fyrstu sýn virðast vera úr eins ólíkri átt og hugsast getur. Annars vegar er um að ræða háklassískt verk eftir Shakespeare hjá borgarleikhúsinu í Malmö og hins vegar glænýja, óreiðukennda samfélagsádeilu á fjölum lítils og óhefðbundins leikhúss í Kaupmannahöfn. Tenging þessara tveggja leikverka er ekki Eyrarsundsbrúin heldur vill svo til að í báðum tilvikum standa íslenskir leikstjórar í stafni, Guðjón Pedersen með sjálft Ofviðrið í Malmö og Egill Heiðar Anton Pálsson með nýsmíðina Democrazy í Kaupmannahöfn.
Guðjón frumsýndi nú fyrir skemmstu og verða sýningar fram á vorið en Democrazy Egils hefur nú verið leikið í rúman mánuð og stendur til að halda því áfram til næstu mánaðamóta. Þræðir verkanna tveggja liggja raunar víðar en í gegnum íslensku tenginguna því að Hamlet Shakespeares er eitt þeirra verka sem varð hópnum sem vann Democrazy til innblásturs. Hópurinn kallar sig Mindgroup og leitast við að kanna mörk leiklistarinnar og samband þess við aðrar listgreinar. Mindgroup lítur í og með á sig sem sjálfstætt fræðafélag sem hefur það að markmiði að viða að sér þekkingu og reynslu á sviði þessara marka á milli leiklistarinnar og annarra listforma. Á annan tug manna tengist Mindgroup lausum böndum en kjarninn er fimm manna hópur sem skipaður er tveimur Dönum og þremur Íslendingum, þeim Jóni Atla Jónassyni rithöfundi og leikskáldi, Sigurði Óla Pálmasyni leikmyndasmiði og Agli Heiðari Antoni Pálssyni, leikstjóra þess verks sem hópurinn setur nú upp. Það er þessi kjarni sem titlaður er höfundur Democrazy.