Category Archives: Kvikmyndir

Tröllalobbíismi, rónar og rokksköddun

Kannski maður setji sig í smá velvakanda-stellingar og fari að ræða sjónvarpsdagskrána svona til að dreifa huganum aðeins frá stríðsfréttunum öllum. Það er reyndar ekki úr miklu að velja á heimili þess sem þetta ritar – bara ein stöð, ríkisapparatið eina og sanna. Að vísu má bæta ofan á úrvalið fréttum og morgunsjónvarpi á Stöð tvö og svo auðvitað skjáleiknum á Sýn en það er líka allt of sumt. Meira að segja Skjár einn stendur ekki til boða. Við í Þingholtunum erum nefnilega enn þá skilin útundan á dreifisvæði stöðvarinnar og verðum að splæsa í fokdýra greiðu upp á þakið okkar til að fá að vera með. Og því tímir maður auðvitað ekki.

Continue reading

Hetjan Hrönn

Á undanförnum árum hafa sumir viljað halda því fram að hefðbundin kvennabarátta sé orðin úreld þar sem að fullt jafnrétti kynjanna sé í raun komið á. Það þarf þó ekki að týna til mörg dæmi til að sýna fram á að víða er enn pottur brotinn og jafnvel hefur staðan versnað á stöku stað. Þar má nefna klámvæðinguna þar sem óvönduðu fólki hefur tekist að koma þeirri hugmynd á framfæri að klám sé yfirleitt aðeins saklaust og skemmtilegt gaman sem haldist í hendur við aukna víðsýni í kynlífsmálum. Þeir sem voga sér að finna að þessari hræðilegu ranghugmynd fá svo á sig þann stimpil að þeir sýni tepruskap og kveini að óþörfu.

Continue reading