Category Archives: Frönsk stjórnmál

Allt galopið

348141849_90690006df_m.jpgVið Fiolstræde, uppáhaldsgötuna mína í Kaupmannahöfn, stendur afar skemmtilegt franskt bókakaffi þar sem að glaðleg ,,Madame” stendur á bak við búðarborðið og afgreiðir bækur sem danskir ,,frankófílar” bera sig eftir í sama mund og hún hellir upp á fyrir gestina sem sitja við borðin í litlu versluninni miðri.Nú í vor hefur bókum verið stillt upp í glugga bókakaffisins sem minna á forsetakosningarnar frönsku. Þar hefur mátt finna bækur í ýmsu formi (meira að segja myndasögur) um erkifjendurna Nicolas Sarkozy og Ségolène Royal. Síðustu fréttir frá Frakklandi benda hins vegar til þess að helst þyrfti að bæta ögn við bókakostinn í glugganum þar sem að keppinautur númer þrjú um franska forsetaembættið, François Bayrou, er farinn að blanda sé allhressilega í einvígið. Og ekki bara það – komist hann alla leið í seinni umferðina bendir ýmislegt til að hann sé líklegastur allra til þess að hreppa leiðtogastöðuna eftirsóttu.

Continue reading

Ségo gegn Sarko

348141849_90690006df_mthumbnail.jpgÍ gær var Nicolas Sarkozy formlega tilnefndur af UMP, franskri samfylkingu hægri manna, sem forsetaefni flokksins. Þar með er formlega ljóst að slagurinn um æðsta embætti franska ríkisins mun í vor standa á milli Sarkozy og Ségolène Royal, forsetaefnis franska sósíalistaflokksins. Þau hafa mikla yfirburði í könnunum um fylgi frambjóðenda í fyrri umferð kosninganna og varla er nú vafi í hugum nokkurra talnaspekinga um að enginn annar en þau tvö eigi raunverulegan möguleika á því að komast í aðra umferð kosninganna. Fylgi þeirra í seinni umferðinni sveiflast þessa dagana nokkuð eftir könnunum en er nokkurn veginn hnífjafnt þegar á það heila er litið. Continue reading

Reiðarslag!

Óhætt er að fullyrða að úrslit fyrri umferðar frönsku forsetakosninganna séu reiðarslag fyrir lýðræðisleg öfl í Frakklandi sem og víðar. Flestir litu á það sem formsatriði að Lionel Jospin og Jacques Chirac, tveir valdamestu menn Frakklands, myndu keppa sín á milli í síðari umferð kosninganna, sem fram fer eftir tæplega tvær vikur. Ein óvæntustu kosningaúrslit síðari ára leiddu hins vegar í ljós að keppinautur Chiracs verður ekki forsætisráðherrann Jospin heldur martröð flestra Frakka – hægri-öfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen.

Continue reading

Ástríðufullur forseti

„Ástríða. Það er ástríða sem drífur mig áfram í störfum mínum fyrir Frakkland og frönsku þjóðina.” Á þessu hefur Jacques Chirac, forseti og forsetaframbjóðandi, hamrað í ræðu og riti undanfarið í takt við herferð sína þar sem að kjörorðið er einmitt ástríða (passion). Forsetinn þykir hafa örlítið sterkari stöðu eins og stendur í baráttunni við Jospin forsætisráðherra, hann hefur yfirhöndina í flestöllum þeim könnunum sem hafa birst að undanförnu, þó að sú forysta sé ansi hreint hverful og sveiflist frá einni úttekt til annarrar.

Continue reading

Chirac eða Jospin?

Það eru kosningar framundan hér í Frakklandi – ekki einar, heldur tvennar. Þingkosningar verða haldnar í vor en áður en að þeim kemur kjósa Frakkar um forseta. Kosningaskjálfti er þegar vel mælanlegur, sérstaklega fyrir forsetakosningarnar og kannanir eru farnar að birtast æ tíðar sem draga upp nokkuð eindregna mynd af því hverjir eiga raunhæfa möguleika í baráttunni og hverjir munu nánast örugglega heltast úr lestinni. Þannig eru nær allar líkur á því að þeir sem heyja munu lokabaráttuna um forsetaembættið verði tveir valdamestu menn Frakklands; þeir Lionel Jospin forsætisráðherra og Jacques Chirac forseti.

Continue reading