Category Archives: Ferðalög

Í húsum skáldsins

img_7746Tíðarfarið í Valparaíso í miðjum september minnir nokkuð á dæmigert íslenskt svikalogn í sjávarþorpum á sumrin. Það er vor í lofti á suðurhveli og sólin skín á bárujárnshúsin á hæðunum frægu sem áunnið hafa chileönsku hafnarborginni gæðastimpil frá UNESCO. Sunnudagurinn er bjartur og fagur og það eina sem að rýfur þögnina eru kirkjuklukkurnar að hringja inn á sínar rammkaþólsku samkomur og geltandi hundaflokkarnir sem ráfa um strætin í leit að ruslapokum sem ekki hafa verið hengdir upp á húsin, nógu hátt til að stökkkraftur göturakka dugi ekki til. Síðan berst úr fjarska taktfastur málmsláttur. Þar eru þeir komnir, kallarnir á bílunum með gaskútana til að fylla á birgðir heimilanna. 

En svikalognið dugir til hádegis. Þá fer að blása hressilega og grunlausir ferðamenn sem fóru út á skyrtunni og jakkanum verða illa úti og flýta sér til baka á sinn gististað til þess að ná sér í peysu – og helst tvær. Þannig er vorið í hafnarbæjunum niður við Kyrrahafsströnd Suður-Ameríku.  Continue reading

Hæðirnar í Valparaíso

Þegar við lítum aftur fyrir okkur út um gluggann á rútunni sem ekur okkur áleiðis eftir gjöfulustu vínekrum Chile umhverfis höfuðborgina Santiago þá öndum við léttar – og það bókstaflega. Héðan úr hæðunum ofan við Santiago blasir við okkur þykk, fölgul mengunarslykja milljónaborgarinnar. Við höldum á vit sjávarloftsins, eftir sjötíu mínútna rútuferð komum við til hafnarborgarinnar Valparaíso.

Um Chile er sagt að þangað komi ferðafólk til að njóta undurfagurrar náttúru en menningar- og borgarlífið sé aftur á móti fremur lítt eftirsóknarvert. Valparaíso er undantekningin á þeirri reglu. Borgin er ekki bara algjörlega einstæð meðal borga í Chile, hún er einstæð í sínum heimshluta og jafnvel um heim allan. Svo sérstæð þykir hún raunar að borgin er á alheimsminjaskrá UNESCO en á þann lista komast, eins og kunnugt er, einungis fágætustu gersemar veraldarinnar. Continue reading

Úti að aka með Steinbeck

141186100thumbnail.jpgÞessa dagana er talsvert mikið rætt um nýútkomna ferðasögu þeirra Einars Kárasonar, Ólafs Gunnarssonar og fylgineytis um reisu þeirra síðastliðið sumar þvert yfir Bandaríkin á gömlum Kadilakk. Ferðalangarnir fylgdu að talsverðu leyti hinum sögufræga þjóðvegi 66“, þeim hinum sama og John Steinbeck átti stóran þátt í að gera ódauðlegan í skáldsögu sinni Þrúgum reiðinnar frá 1939.Í tilefni útkomu reisubókar þeirra Einars og Ólafs er því ekki úr vegi að rifja einmitt upp ferðasögu sem lýsir ferðalagi sjálfs Johns Steinbeck um þetta sama víðfeðma land haustið 1960. Sú saga kom út á bók 1962, sama ár og Steinbeck var tilnefndur til Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, og heitir því alþýðlega nafni Travels with Charley.

Continue reading

Þar sem glæpirnir borga sig

ystad-stortorget.jpgEinna syðst á Skánartá Svíþjóðar kúrir smábærinn Ystad með sína 17 þúsund íbúa. Sagt er að hvergi á Norðurlöndum og óvíða í Evrópu sé að finna eins heillega bæjarmynd frá horfnum tíma og í þessum skánska smábæ. Bæinn prýða á fjórða hundrað bindiverkshús, meðal annars það elsta sem enn stendur á Norðurlöndum öllum, byggt árið 1480. Ystad hefur í aldanna rás notið staðsetningar sinnar þegar kemur að samgöngum á sjó norðan úr Svíþjóð og suður í álfu. Höfnin er lífæð bæjarins, ferjur fara með reglulegu millibili frá höfninni í Ystad suður til Póllands og Borgundarhólms og smábátahöfnin er þéttskipuð litríkum fleyjum. Continue reading