Category Archives: Dönsk stjórnmál

„White African Mama“

Þrátt fyrir að Vesturbrúarhverfið í Kaupmannahöfn hafi á undanförnum árum gengið í nokkra endurnýjun lífdaga sem eitt helsta tískuhverfi borgarinnar eimir þó enn eftir af gamla tímanum þar. Vissulega hafa hönnunarbúðir og hugguleg kaffihús þrengt að þeim hluta Istedgade og nálægra gatna rétt hjá aðalbrautarstöðinni sem kalla mætti rauða hverfið. En það er nú samt þarna enn.

Þess vegna sér maður líka enn léttklæddar stúlkur standa þar á gangstéttunum. Ekki fer framhjá nokkrum manni sem þar fer um að sá tími er liðinn að þarna séu eingöngu innfæddar konur. Margar þeirra eru greinilega langt að komnar.

Þeir sem ekki beinlínis falast eftir konunum til fylgilags reyna kannski að gefa þessu sem minnstan gaum enda tengist þessi sjón í huga margra einni af dapurlegustu hliðum mannlífsins. Þá finnst fólki kannski betra að horfa frekar í hina áttina og reyna síðan að gleyma öllu inni á einhverjum nýopnuðu tískubaranna í nágrenninu.

Þó líta ekki allir undan. Ein þeirra er Michelle Mildwater félagsráðgjafi og meðferðarfulltrúi. Michelle hefur um margra ára skeið gengið um götur „rauða hverfisins“ á Vesturbrú að næturlagi til að veita útlendu vændiskonunum á svæðinu aðstoð og ráðgjöf. Starf hennar hefur leitt til þess að fjöldi þeirra erlendu kvenna sem seldar eru mansali til Danmerkur veit að Michelle er treystandi í tilveru þar sem annars er full ástæða til að tortryggja allt og alla. Continue reading

Skrímslið undir rúminu

- útskýringar – ekki afsakanir -

islam_kapa1.jpgMeðan ég lærði stjórnmálafræði við Háskólann bjó ég á jarðhæð í litlu húsi neðst á Baldursgötunni í miðbæ Reykjavíkur. Ósjaldan um helgar labbaði ég eftir Bergstaðastrætinu með vinum mínum eftir að skyggja tók og skemmti mér fram í morgunsárið áður en ég síðan skjögraði sömu leið heim aftur. Að langflestu leyti var þetta fremur rútínukennt og tilbreytingasnautt líferni og fremur leiðigjarnt til lengdar.

Þetta fremur leiðigjarna og tilbreytingasnauða líf var þó alltaf sett í töluvert breytt samhengi þegar maður hitti frændfólk sitt af eldri kynslóðinni í sunnudagsboðum eða las æsifréttir fjölmiðlanna að lokinni helgi. Því samkvæmt þeirra lýsingum var helst að skilja að miðbær Reykjavíkur væri stórhættulegur vígvöllur dag og nótt þar sem engum væri óhætt utandyra fyrir morðingjum, misyndismönnum og langt leiddum sprautufíklum. Continue reading

Sjaldan launar kálfurinn…

brunninnbill.jpgÞað er óneitanlega nokkuð undarlegt að horfa á dramatíska viðburði í sjónvarpinu dag eftir dag, líka þeim sem maður er vanur að sjá í fréttamyndum frá fjarlægum slóðum, en vita það jafnframt að það tæki mann ekki nema fimmtán mínútna hjólatúr að komast í hringiðuna miðja úr rósemdinni heima fyrir.Þannig hefur það verið að búa hér í Kaupmannahöfn undanfarna daga þar sem að stuðningsfólk Ungdómshússins svokallaða hefur gengið berserksgang um Norðurbrú og brotið allt og bramlað sem fyrir því verður og réttlætt skemmdarfýsn sína, ofbeldi og yfirgang með því að húsnæði gömlu félagsmiðstöðvarinnar þeirra hafi verið selt.

Continue reading

Fogh og innflytjendastefnan

den-falskethumbnail.jpgÉg sat síðasta haust fyrirlestur hjá dönskum mannfræðiprófessor við Malmö-háskóla. Hann málaði afar svarta mynd af danskri þjóðfélagsumræðu og sagði að nánast engir afkimar hennar væru undanskildir þeirri kynþáttahyggju sem herjaði á samfélag hans. Allir fjölmiðlar og allir stjórnmálaflokkar hefðu gerst sekir um að vera á sama báti í þessu máli. Continue reading