Category Archives: Daglegt líf

Hipp og kúl Argentína

img_6815.jpgSú var tíðin fyrir óþægilega stuttu síðan að verslunarferðir Íslendinga einkenndust af þeirri hugmyndafræði að þar sem allt væri svo ódýrt í útlöndum þá gilti það að kaupa sem allra mest og athuga það svo í fyrsta lagi eftir að heim var komið hvort að fötin væru klæðileg eða ekki og hvað þá hvort þau væru í réttri stærð. Síðan hefur ýmislegt gerst, Íslendingar eru orðnir mun ferðavanari en áður og þramma áreiðanlega margir oftar upp og niður Strikið, Oxford Street og Römbluna en þeirra eigin Laugaveg.

Þegar jafnvel þessar útlendu verslunargötur eru orðnar að hversdagslegum kaupleiðöngrum í hugum Íslendinga er ef til vill kominn tími til þess að kanna ótroðnari slóðir. Sjálfsagt dytti ekki mörgum þeirra í hug að halda alla leið til Búenos Aires, höfuðborgar Argentínu, í verslunarferð en það er samt sem áður margt vitlausara. Búenos Aires er nefnilega stórborg sem alveg er að springa af sköpunarkrafti þessi misserin. Það kemur meðal annars fram í gríðarlegum uppgangi fatahönnuða sem lagt hafa undir sig heilt hverfi með búðir sínar þar sem lágt gengi argentínska pesóans veldur því að ferðamönnum gefst kostur á að kaupa glæsilega hönnun á hagkaupsprís. Continue reading

Sumar og jól

img_7833.jpgÞað er von á rauðum jólum hér í Talca, borginni þar sem ég bý í Chile. Þegar þetta er skrifað tæpri viku fyrir jól ná lengstu spár reyndar bara fjóra daga fram í tímann en þar sem hitinn losaði þrjátíu stig í dag, í gær, í fyrradag og daginn þar áður líka og síðustu dropar komu úr lofti einhvern tíma í september þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að spá mín um rauð jól í Talca þarfnast ekki mikilla vikmarka.

Í Talca er um þessar mundir álíka margt sem minnir á komandi jólahátíð og sólríkir júlídagar á Íslandi gera. Fyrir utan hásumar og komandi sumarsólstöður þá fara Chilebúar mun síður hamförum í jólaskreytingum en þekkist mun norðar á hnettinum. Vissulega er að finna jólatré hér og jólasvein þar á stangli um borgina en almennt gerir sjaldgæft skrautið ekki annað en að undirstrika fyrir manni fáránleikann við það að ætla sér að halda jól hátíðleg með steikjandi sól beint fyrir ofan hvirfilinn á manni í stað þeirrar íslensku sem um þessar mundir gerir lítið meira en að endurkasta örlitlu af birtu sinni á landsmenn í fáeina klukkutíma á degi hverjum. Continue reading

Þar sem glæpirnir borga sig

ystad-stortorget.jpgEinna syðst á Skánartá Svíþjóðar kúrir smábærinn Ystad með sína 17 þúsund íbúa. Sagt er að hvergi á Norðurlöndum og óvíða í Evrópu sé að finna eins heillega bæjarmynd frá horfnum tíma og í þessum skánska smábæ. Bæinn prýða á fjórða hundrað bindiverkshús, meðal annars það elsta sem enn stendur á Norðurlöndum öllum, byggt árið 1480. Ystad hefur í aldanna rás notið staðsetningar sinnar þegar kemur að samgöngum á sjó norðan úr Svíþjóð og suður í álfu. Höfnin er lífæð bæjarins, ferjur fara með reglulegu millibili frá höfninni í Ystad suður til Póllands og Borgundarhólms og smábátahöfnin er þéttskipuð litríkum fleyjum. Continue reading

Sadistar með kjaftæði

Aldrei á öllum mínum háskólaferli man ég nokkurn tíma eftir því að hafa rekist á tannlæknanema. Þeir halda sig sjálfsagt í einhverjum afviknum híbýlum utan við háskólaþorpið (sem samkvæmt öllu bera samheitið Tanngarður). Þar sem ég hef, að því er ég best veit, aldrei hitt tannlæknanema hef ég ekki hugmynd um hvert innræti slíkra fyrirbæra er eða hvernig þannig einstaklingar koma fólki almennt fyrir sjónir. Samt grunar mig að ég gæti bent á tannlæknanema úti á götu án nokkurra fyrirframgefinna upplýsinga. Fólk sem hefur þá ástríðu helsta að æða upp í kjafta á andfúlum samborgurum sínum (svokallað kjaftæði) getur varla auðveldlega fallið inn í hóp samborgara sinna. Continue reading