Ég heiti Sigurður Ólafsson.
Þessi síða er einkum ætluð sem samansafn fyrir úrval þeirra greina sem ég hef birt opinberlega frá minni fyrstu opinberu grein 2001 og til dagsins í dag. Framan af er einkum um að ræða greinar mínar af vefsíðunum Pólitík.is (2001-2002), Sellan.is (2003-2006), Vettvangur.net (2006-2007) og Kistan.is (frá 2008). Greinar síðustu ára eru hins vegar margar hverjar skrif mín fyrir íslenska prentmiðla, einkum Morgunblaðið og Fréttablaðið, en einnig slæðast með greinar fyrir tímarit, kafli í ritgerðarsafni o.s.frv.
Hér er lítið sem ekkert um fræðileg skrif heldur er hér fyrst og fremst safnað saman greinum sem endurspegla viðhorf mín og áhugasvið.
- – -
Ég er 33 ára (f. 1978) alþjóðastjórnmálafræðingur, bý í Kaupmannahöfn og deili vinnutíma mínum milli tveggja vinnustaða. Annars vegar sinni ég verkefnum fyrir samskipta- og upplýsingadeild skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs hér í borg. Hins vegar er ég starfsmaður alþjóðlegs rannsóknarverkefnis við Kaupmannahafnarháskóla.
Ég hef búið í Kaupmannahöfn frá sumrinu 2006 en bjó áður í eitt ár í Malmö og þar áður annað ár í Stokkhólmi. Þar inn í skýst svo dvöl við rannsóknir í Chile í tæpt hálft ár 2007-8 og þónokkrum árum fyrr vetrardvöl í Frakklandi og á Spáni. Ég er hins vegar Reykvíkingur að upplagi.
- – -
Ég lauk BA-prófi frá Háskóla Íslands 2001 í stjórnmálafræðum (aðalgrein) og íslenskum fræðum (aukagrein). Í lokaritgerð minni fjallaði ég um möguleg áhrif Nice-sáttmála ESB á skilvirkni stofnana sambandsins.
Haustönnina 2001-2002 lærði ég frönsku fyrir útlendinga við Institut d’Etudes Françaises pour Etudiants Etrangers í Aix-en-Provence í Frakklandi.
Vorið 2005 lauk ég magistersprófi í alþjóðafræðum frá friðar- og átakastofnun Uppsala-háskóla í Svíþjóð. Í lokaritgerð minni fjallaði ég um verkefni sænsku þróunarsamvinnustofnunarinnar í tengslum við endurkomu flóttamanna til heimahéraða sinna í Bosníu í kjölfar borgarastríðsins þar í landi.
Veturinn 2005-2006 sótti ég námskeið við háskólann í Malmö, annars vegar í stjórnmálamannfræði (s. politisk antropologi) og hins vegar námskeið um alþjóðlega fólksflutninga og samskipti þjóðarbrota (s. internationell migration och etniska relationer).
Vorið 2008 úskrifaðist ég með masterspróf í þróunar- og stjórnunarfræðum frá Lundarháskóla í Svíþjóð. Lokaritgerð mín fjallaði um kosningakerfið í Chile og áhrif þess á lýðræðisvæðinguna þar í landi. Ritgerðin byggði á rannsóknum mínum í Chile 2007-8.
Auk þessa starfaði ég á Borgarbókasafni Reykjavíkur 1999-2005 (með hléum) og vann þá meðal annars við Bókmenntavef safnsins og ýmsa viðburði sem staðið var fyrir á sviði íslenskra bókmennta. Þá hef ég undanfarin ár tekið að mér prófarkalesturs- og þýðingarverkefni og áðurnefnd skrif fyrir fjölmiðla.
Frá haustinu 2008 hef ég verið ritstjóri tímarits sem Ljósið, endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra, gefur út. Sjá meira um það hér.
Þá hef ég meðal annars starfað tímabundið fyrir samtökin The Humanitarian Water and Food Award í Kaupmannahöfn.
Auk þess átti ég frumkvæðið að starfsemi sem nú er orðin að félagsskapnum PILK (Projektgruppen Islandsk litteratur i København). Við í PILK höfum staðið fyrir árlegri bókmenntadagskrá þar sem við kynnum íslenska rithöfunda og verk þeirra fyrir Dönum og Íslendingum búsettum í Danmörku. Meiri upplýsingar um verkefnið má sjá á vefsíðu félagsins.
- – -
Eiginkona mín er Gunnhildur Kristjánsdóttir, stjórnmálafræðingur og nemi í iðjuþjálfun. Við eigum tvö börn.
Netfang mitt er: sigurdur@vettvangur.com.
Ég á ferilskrá mína á íslensku, ensku og dönsku og eldri gerðir á sænsku og spænsku. Ég kýs að birta þær ekki hér, þar sem þær taka örum breytingum, en er til í að senda hverjum þeim sem áhuga kynni að hafa á því.