Monthly Archives: ágúst 2009

„Ég er faðir hans og ég vil ekki deyja frá honum“

Óhætt er að fullyrða að pólitískt hitamál sumarsins í Danmörku hafi verið dvöl íraskra flóttamanna í Brorsonskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Flóttamennirnir eiga það allir sameiginlegt að hafa dvalist um árabil í Danmörku en hafa nú fengið skilaboð um það að dvöl þeirra í landinu sé lokið og nú beri þeim að snúa aftur til Íraks. Kirkjan ákvað hins vegar á vormánuðum að skjóta skjólshúsi yfir þann hluta flóttamannahópsins sem þangað leitaði og upp frá því hélt fjöldi manns til í kirkjunni.

Einn ábúenda í Brorsonskirkjunni var Ali Nayef. Hann var í sömu stöðu og allmargt sambýlisfólk hans í kirkjunni að óttast mjög hina þvinguðu heimför til Íraks. Ali óskar sér heitt og innilega að kraftaverkin gerist, ákvörðunum verði snúið við og að hann fái áframhaldandi danskt landvistarleyfi. Það leyfi myndi hann samt ekki nota til mikið lengri dvalar í Danmörku. Hugur hans leitar annað. Hann vill til Íslands á vit fjögurra ára gamals sonar síns, hans Adams. Continue reading